Bloggsíða Veinólínu
Klukkan
Við gefumst ekki upp þótt máti blási....
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734541 dögum
21.11.2007 21:55:32 / vigdisga

Nýtt blogg

Bless blogg.central.is, takk fyrir samveruna! ;)

http://www.veinolina.blogspot.com

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 19:08:02 / vigdisga

Tónleikar á sunnudaginn

 

 

 

 

 

Smá fréttir af Jóni Gunnari sem er bara ótrúlegur!!! Hann er nú kominn á Grensás og byrjaður í endurhæfingu. Hann bloggaði í fyrsta skipti á heimasíðunni sinni í gær og það var frábær gjöf til okkar sem höfum fylgst með honum og legið á bæn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 08:39:03 / vigdisga

Ómægod!!!

http://www.youtube.com/watch?v=B078PilkW6E

Góða helgi elskurnar!

Ykkar Veinó:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 11:27:35 / vigdisga

Rærærærærærærrrrrrræææææ......

...og allt gott að frétta svo sem.. skrapp til Reykjavíkur á æfingu í gærkvöldi, mjög fínt að kíkka svona í borgina í miðri viku. 8)

Er svo að fara á æfingu í kvöld fyrir þessa tónleika:

N.k laugardag þ. 17. nóv kl 17 verða haldnir tónleikar í Sólheimakirkju.
Á efnisskránni eru tónverk frá gamla tímanum, íslensk og ensk, fyrir litla hljómsveit og íðilfagrar raddir. Einnig gefur að heyra nokkur óvænt frumsamin verk í anda gamla tímans en þó með hæfilega póstmódernískum blæ. Hljómsveitina skipa nokkrir vel valdir meðlimir Cell-hópsins. Íðilfagur söngur er svo í höndum sérlega frambærilegra söngvara sem hér leynast og eru samfélaginu að góðu einu kunnir en þeir eru söngdísirnar: Bergþóra og Vigdís og hinn frómi fegurðarunnandi Guðmundur Karl sem að þessu sinni gerir karlröddinni góð skil.
Framkvæmd, útsetningar og listræn stjórnun er svo á herðum Lárusar Sigurðssonar.
Allir tónelskir eru hvattir til að mæta og njóta.
Tónleikarnir verða svo endurteknir í heild sinni  þriðjudaginn 20. nóv. kl 20.
....nóg að gera og gaman að vera til!
Ykkar Veinó:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 08:11:31 / vigdisga

Arídúarídúaradei....

..lalalaalalaaaaaaaaa...........8)

Svona er lítið að frétta af minni þessa dagana. Allt gengur þó vel og lífið er dásamlegt. Eigum við að ræða það eitthvað?!?

Sæælll!!

Ykkar Veinó :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 18:41:48 / vigdisga

Gott að koma heim

Heima er best! :D

Lovjúgæs!

Ykkar Veinó :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 17:38:51 / vigdisga

Ikea...

Gekk ágætlega að syngja í gær, dálítið snobbað partý og maður var ekki alveg með það á hreinu hvort fólk nennti að hlusta á okkur... en svona er þetta bara stundum. ;)

Við Hulda skruppum í IKEA áðan og gengum þar í nokkra hringi eins og rollur í rétt..... það voru svo margir að versla jóladót að það hálfa hefði verið meira en nóg, "Jólin þín byrja í IKEA" og allt það... en við komumst klakklaust út úr þessu og geðheilsan bara nokkuð góð þrátt fyrir græðgina. :haha:

Hafið það gott elskurnar!

Ykkar Veinó :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 11:38:11 / vigdisga

Alltaf svo gott að fá helgarfrí!

Jamm, það er nú bara þannig og punktur og pastaskrúfur!

Er að fara í bæinn í dag, VoxFox syngur fyrir 200 manns í Bláa Lóninu í kvöld, eitthvað voða voða fínt boð. Verð svo í bænum um helgina í rólegheitunum. Ég elska lífið í dag, það er svo fallegt í snjónum á Sólheimum og mikið spennandi framundan. Kíkið t.d. á þetta: www.solheimar.is (frétt um leikrit).  ;) Mikið aksjón í gangi þessa dagana...

Jæja elskurnar, hafið það nú gott og farið vel með ykkur og hvort annað, það er svo gott!

Ykkar Veinó í Paradísó :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 10:24:52 / vigdisga

Afmælisstelpa dagsins!

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Sigga Dóra, hún á afmæli í dag!!!!! :haha:

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU BESTA VINKONA MÍN! Vildi óska að ég væri stödd í Köben núna.....

Góða skemmtun í kvöld og láttu nú dekra dálítið við þig, þú átt það skilið! :haha:

 Knús og kossar, þín Vigdís.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 17:34:23 / vigdisga

Dottin í jólaskap.....

Fann geisladisk sem Ólöf skrifaði fyrir mig um síðustu jól.... og það var eins og við mannin mælt.....það byrjaði að snjóa þegar Bing Crosby söng "let it snow....", ekkert smá magnað móment skal ég segja ykkur!! Jáá sællllll!!!

Gleðilega jólamánuði, nóv, des, jan og feb.....nú er bara að hengja upp jólaseríur og tapa sér í gleðinni! :lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 20:03:27 / vigdisga

Hvað með ykkur?

Hurru, hvernig væri að færsla dagsins væri bara bón til ykkar um að deila því með mér hvernig ykkur líður og hvað þið eruð að brasa? ;)


Hafið það gott í dag! Ykkar Veinó 8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 16:49:02 / vigdisga

Afmælisstelpa dagsins!

Hún á afmæli í dag, 

hún á afmæli í dag,

hún á afmæli hún mamma,

                                                  hún á afmæli í dag!!!!!!!!!

 

Húrra, húrra, húrra!! :D:D:D:D:D:D:D:D

Til hamingju með sextugs afmælið mamma mín, ég elska þig!!

 p.s.endilega sendið gömlu kveðju hérna á síðunni minni, ég veit að hún yrði ekkert smá glöð með það! ;)

Hafið það gott í dag, ykkar Veinó :haha:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 19:39:18 / vigdisga

Yndisleg helgi að baki!

Ítalska stórfjölskyldan átti saman yndislega helgi í sumarbústaðnum. Mikið var etið, drukkið, sungið, spilað, hlegið, sofið og allt annað sem einstaklega gaman er að gera í sumarbústöðum landsins. 8) Það var rok, rigning, sól, slydda, snjókoma og logn, alveg eins og það gerist best! ;)

Annars gott að frétta, Jón Gunnar kominn af gjörgæslu og reitir nú af sér brandarana alla daga... gott meððððig Nonni litli! :haha:

Hafið það gott elskurnar!

Ykkar Veinó


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 18:29:48 / vigdisga

Spennandi helgi framundan

Á morgun fer ég með hele familíen í sumarbústað í tilefni af 60 ára afmæli mömmu mánudaginn 5. nóvember. Það er svo gaman að hafa eitthvað að hlakka til og þessi vika hefur bókstaflega flogið áfram sökum þess. :D

Vikan hefur sem sagt verið góð, gaman í vinnunni og ljúft í paradís.

Hafið það gott elskurnar og farið vel með ykkur!

Áfram Jón Gunnar!!!

p.s. kjósum Næturvaktina til Edduverðlaunanna á www.visir.is. Drepfyndinn þáttur!!! :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 19:39:28 / vigdisga

Snjórinn horfinn...

Í gær var fallegur jólasnjór yfir öllu á Sólheimum og mér fannst það svo kósí....í nótt kom svo kolvitlaust veður og þegar ég vaknaði í morgun var allur snjórinn horfinn. skrítið hvað þetta er alltaf fljótt að breytast. Svona er Ísland í dag... ;)

Ráð dagsins á www.reyklaus.is

Það eru 55 dagar síðan þú hættir að reykja!
Þú ert komin(n) yfir það versta og getur fyllst stolti og ánægju. Þú ert búin(n) að áorka miklu.

Til hamingju ég! 

Ykkar Veinó :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14